Nýr kafli
08 May 2008Ég hef tekið þá erfiðu ákvörðun að leggja skíðin á hilluna. Þetta hefur verið erfiður vetur vegna meiðsla sem ég glími enn við. Ég hef prófað ýmislegt til að vinna bug á þessu meini en nú er svo komið að læknar telja aðgerð vera einu lausnina. Aðgerðin yrði gerð upp á von og óvon um bata. Aðgerðin sjálf er ekki flókin en hættan á samgróningum og örvefjamyndun er mikil. Einnig er hætta á að örið framaná leggnum valdi mér óþægindum þar sem álagið í klossunum er mikið.
Ég er sátt við þessa ákvörðun þó það séu ákveðin vonbrygði að geta ekki klárað sett markmið sem voru Ólympíuleikarnir 2010. Ég veit hins vegar að það er margt annað hægt að gera í lífinu þó svo að hingað til hafi skíðin átt hug minn allan.
Áður en ég byrja nýjan kafla langar mig til að þakka öllum sem hafa stutt mig í gegnum árin, án þessa stuðnings hefði ég ekki náð þangað sem ég er í dag. Mig langar líka að rifja upp ferilinn síðustu 12 árin eða síðan ég keppti á mínu fyrsta FIS-móti.
- Fyrsta FIS-mótið mitt var stórsvig á Akureyri 12. apríl 1996, 5. sætið og 101,55 punktar.
- Fyrsta FIS-mótið í bruni var á Norska meistaramótinu í Oppdal 19. mars 1999, 9. sætið og 70,78 punktar.
- Ég hef keppt í 13 löndum á 316 alþjóðlegum mótum
- Ég fór á þrjú Heimsmeistaramót, það fyrsta í St.Anton, Austurríki 2001, annað var í St.Moritz, Sviss 2003 og það þriðja var í Åre, Svíþjóð 2007 og startaði samtals 10 sinnum
- Ég fór á tvenna Ólympíuleika, fyrst í Salt Lake city, USA 2002 og síðan í Tórínó, Ítalíu 2006 og startaði samtals 8 sinnum
- Ég keppti 31 sinni á Heimsbikarmóti (fyrst 21. desember 2002 í bruni í Lenzerheide í Sviss).
- Ég keppti 39 sinnum í Evrópubikar.
- Besti árangur á stórmótum var 23. sætið í bæði bruni og risasvigi á Ólympíuleikunum í Tórínó 2006 og 19. sætið í combi á HM í St. Moritz.
- Á Heimslista hef ég verið best í 70. sæti í super-combi, 71. sæti í risasvigi, 86. sæti í bruni, 169. sæti í stórsvigi og 316. sæti í svigi.
- Ég hef verið 87 sinnum í topp 5 á Alþjóðlegum mótum, þar af 35 sinnum í 1. sæti, 17 sinnum í 2. sæti, 12 sinnum í 3.sæti, 14 sinnum í 4. sæti og 9 sinnum í 5. sæti.
- Ég hef orðið Íslandsmeistari 18 sinnum. Fyrst árið 1997 í svigi og alpatvíkeppni. Það ár varð ég einnig Bikarmeistari SKI.
- Ég hef verið valinn skíðakona ársinns 7 sinnum.
- Ég hef verið valinn Íþróttamaður Akureyrar 3 sinnum.
- Ég hef keppt á Norska- sænska- og þýska Meistaramótunum og verið topp 5 á öllum mótunum.
Skíðakveðjur
Dagný Linda
Keppnistímabilið búið
03 Apr 2008Þó að veturinn hafi verið hálf dapur hjá mér vegna meiðsla og æfinga- og keppnis leysis þá náði ég að sanka að mér þó nokkuð af verðlaunum á Landsmótinu á Ísafirði og FIS-mótunum sem haldin voru í Hlíðarfjalli á Akureyri.
7 gull, 1 silfur og sigur í Icelandair- cup.
Ég keppi hins vegar ekkert meira í vetur vegna meiðslanna. Ég ætla að hitta lækninn minn í næstu viku. Hann ætlar að skoða á mér legginn og í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um hugsanlega aðgerð.
Kær kveðja
Dagný Linda
Ísafjarðarævintýri
31 Mar 2008Frá því ég byrjaði að leggja leiðir mínar til Ísafjarðar í keppnisferðalög hef ég alltaf komið heim með skemmtilega ferðasögu. Það var engin undanteknig í þetta skiptið.![]()
Það var búið að koma því þannig fyrir að á fimmtudaginn ætlaði flugfélagi að senda eina vél í beinu flugi frá Akureyri til Ísafjarðar. Allir frá SKA og reyndar fleiri félög voru um borð. Ferðin gekk vel vestur og enginn voðalegur hristingur eins og yfirleitt er á leið til Ísafjarðar. Vélin tók sveig yfir bæinn og stefndi á brautina. Hjólin snertu brautina en við skoppuðum upp aftur og áður en við vissum af var vélin á leiðinni upp
. Flugstjórinn taldi þetta óheppni, við hefðum fengið á okkur vindhvíðu og ætlaði að prófa aftur. Vélinn tók aftur sveig yfir bæinn og í þetta skipti virtist þetta ganga betur. Lendingin var mýkri en bara annað hjólið fór niður, vindurinn sá til þess. Aftur fór vélin á loft og það var eins og hún væri þyngri í þetta skiptið, við vorum lengur upp. Eftir þessar tvær tilraunir flugum við til Reykjavíkur og þetta endaði með rútuferð til Ísafjaðar og við voru ekki komin fyrr en rúmlega tvö um nóttina
.
Ísfirðingar stóðu sig vel í mótshaldi þó svo að veðurguðirnir hefi ekki verið á okkar bandi. Þeir höfðu lítið fyrir því að senda sólina í bæinn en hún leit þó á okkur af og til í gegnum skýinn. Það var mikill vindur og skafrenningur og það snjóaði töluvert. Við getum kannski sjálfum okkur um kennt fyrir snjókommuna en það eru alltaf allir skíðamenn að biðja um meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó.![]()
Mótin gengu vel hjá mér og ég náði að verja titlana enn einu sinni. Þrefaldur Íslandsmeistari þriðja árið í röð, ekki sem verst. Að þessu sinni var einnig keppt í samhliðarsvigi svo það var einn titill til viðbótar í boði en ég þurfti að hætta keppni út af leggnum. Varð aumari með hverjum deginum og ég gat bara ekki pínt mig meira.
Kata systir stóð sig einnig mjög vel á þessu móti. Hún náði tveimur silfrum og einu bronsi og er bara rétt í hælunum á stóru systur.![]()
Mamma, Pabbi og Kitti bróðir komu til Ísafjarðar til að styðja okkur og stóðu sig með eindæmum vel
. Það voru einnig margir aðrir frá SKA sem að mættu á svæðið, bæði foreldrar, systkini og keppendur sem ekki gátu verið með vegna meiðsla og SKA átti því frábæran stuðningshóp í brekkunni.
Skíðakveðja
Dagný Linda
Landsmót á Ísafirði
27 Mar 2008Þá er komið að Landsmótinu og í fyrsta skipti í langan tíma þurfti ekkert að spá í það hvort nógur snjór væri á Landsmótsstað. Það eru nokkur ár síðan ég fór á skíði á Ísafirði en þeir héldu fínt Landsmót þar 1999.
Ég flýg með SKA krökkunum á eftir og við ætlum að reyna að skíða nokkrar ferðir frjálst þegar við komum á staðinn. Á föstudaginn er stórsvigsmót, á laugardaginn er svigmót og á sunnudaginn á að keppa í samhliðarsvigi.
Við fljúgum svo heim seinnipartinn á sunnudag en það eiga að vera FIS-mót hérna fyrir norðan á þriðjudag og miðvikudag.
Ég veit ekki hvort ég kemst í tölvu fyrir vestan en reikna með að þeir setji inn fréttir um mótið á www.skidi.is
Kveðja
Dagný Linda
Páskar
20 Mar 2008Þá er ég aftur komin á klakann og ætla vera hér fram yfir Landsmót. Æfingarnar úti gengu ágætlega miðað við aðstæður (á leggnum). Fyrsta daginn skíðaði ég nokkrar ferðir frjálst en það var bara svo vont að ég gat ekki einu sinni bitið á jaxlinn. Við Haukur reyndum því að leggja púða í kringum verkinn til að minnka pressuna en það hjálpaði ekki. Við höfðum reyndar prófað það áður án árangurs. Við prófuðum svo að skera út fóðrið í tungunni þar sem verkurinn er og viti menn, það gekk miklu betur. Ég gat allvega skíðað án þess að vera að drepast. Ég fór á fjórar stórsvigsæfingar sem gengur betur og betur með hverri æfingunni. Ég náði líka tveimur svigæfingum en ég hef ekki farið á svigskíðin síðan í september eða október.
Ég ætla að reyna að komast á einhverjar æfingar hérna heima en annars verður þetta bara að duga fyrir Landsmótið.
Gleðilega páska!!![]()
Dagný Linda
Nafn
